Thoughts Of THE MaD MeN

Seen it all, done it all, can't remember most of it

02.04.2009 06:30:42 / steyk

Ef það er einhver að skoða þetta ennþa

Þá ætlaði ég að tilkynna .þetta  hérna á fjölförnum stað að það er von á erfingja 28 sept.

Kv. Rúnar

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 22:09:58 / Elli

Nei hvað er þetta... ný færsla

Já svei mér þá, komið svoldið langt síðan síðast en eins og alltaf þegar maður þarf að vera að læra þá gerir maður allt annað en að læra.

Spurning hvort maður eigi að vera að segja allt sem hefur á daga manns drifið eða ekki, sýnist allir vera hættir að skoða þetta hvort eð er.

Allavega, er kominn frá Miami, var GEGGGGGGJAÐ. Alltof mikið sem var gert þarna og hellingur sem hægt er að segja. Reyndar er ég örugglega búinn að gleyma helling en samt mikið sem ég man. Skoða myndirnar oft og fæ alltaf uuu heimþrá? þangað. Djammið þarna var mikið mun betra en á íslandi og það voru aldrei slagsmál eða neitt vesen. Ef maður rakst utan í einhvern helvatnaðan gaur þarna þá bara ekkert mál og tók í hendinna á manni og heilsaði eitthvað annað en á íslandi. Ameríkanar eru líka mjög vingjarnlegt fólk, hitti fullt af nice fólki þarna. T.d. þegar við fórum til Key West þá var party í herberginu hjá mér atla og einhverjum bældum útlendingi sem sagði ekki orð og þá voru bara mættir einhverjir gaurar og vildu vera með. Reyndar um 5 leytið eða einhvern tíma nálægt því kom hótelstarfsmaður og hótaði okkur öllu illu því það var víst eitthvað kvartað og það átti að rukka mig og atla fyrir herbergin sem kvörtuðu en það reddaðist sem betur fer því það voru víst nokkuð margir sem kvörtuðu hehe. Já Key west var geggjuð ferð og mjög gaman að sjá svona bæ, þetta var svoldið sérstakur bær með gömlum öðruvísi byggingum og mikið af samkynhneigðu fólki (var víst einhver gay pride hátið þarna þegar við vorum þarna) en það var bara gaman, snarsamkynhneigði skemmtistjórinn í skólanum dró okkur nokkra krakka á einhvern stað þar sem var dragkeppni og fullt af gaurum í fyndnum kjólum að syngja "divu" lög og ég meig næstum á mig af hlátri þegar einn gaurinn tók af sér hárkolluna í lok lagsins, það var svona you had to be there moment.

Það var djammað á nánast hverjum degi en aðaldagarnir voru miðvikudagar og sunnudagar og svo seinna meir bættust við þriðjudagar og fimmtudaga þökk sé skemmtanastjóranum í skólanum. Strandarparty dóu út fljótlega eftir að við komum því miður því það skapaðist skemmtileg stemning á ströndinni. Allavega það er fullt af sögum frá Miami en kannski ekki allt prenthæft svo ég læt þetta duga í bili, kannski ef ég man eftir fleirum skemmtilegum sögum birti ég þær.

Núna er ég allavega byrjaður í HÍ og er það ágætt, er samt svoldið á eftir og það er helvíti að halda sér vakandi í tíma. Er alltaf í Háskólabíói og ég tek aftur að hafa viljað hafa þægilega stóla í stofum, það er ekkert betra gerir mann bara dauðan og mar fylgist lítið með.

heyrðu þetta er nóg í bili, farinn að horfa á eitthvað af viti

bb 

já ég var að bæta við myndum nokkrum á myspace/ellisvans, bara svona ganni góðar myndir allavega 


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 22:04:08 / Elli

Honorable (dude where's my car)

Jæja fólk, kannski kominn tími á nýja færslu

 Eins og þeim sem lesa þetta ætti að vera ljóst þá er ég á Miami í augnablikinu, búinn að vera hér í rúmlega 3 vikur á 9 vikur eftir. Þetta er búið að vera frábært, mér finnst búið að vera geggjað heitt hérna síðan ég kom en allir sem hafa verið hérna lengur eða innfæddir segja að það sé búið að vera kalt undanfarið, algerar veimiltítur hérna en góða er að það á bara eftir að verða heitara hérna. Efast um að ég eigi eftir að höndla þetta. Alltaf þegar við förum í sólbað við sundlaugina þá er það heitara en að vera í gufubaði, ekki venjulegur hiti, það versta er að ég svitna eins og ég veit ekki hvað og alltaf eftir að hafa legið í svona 30 mín á bakinu þá stend ég upp og sé dettifoss á bringunni á mér. Gaman að því. Djammið hérna er alltílagi en við eigum eftir að fara á aðalstaðinn sem heitir víst Space. Gerðum tilraun til þess um daginn ég Atli og Ásta. Klúbburinn er ekki á Miami beach heldur downtown Miami svo við tókum góða leigubílaferð þangað, en nei þá var staðurinn lokaður, bömmer, en leigubílstjórinn vissi það, hann var bara að svindla á okkur. Hann lofaði okkur að finna annan stað og keyrir okkur á strippklúbb sem var í grennd. Okkur langaði að fá meira að drekka þannig að við sættumst á það en nei okkur var ekki hleypt inn því skilríkin okkar voru ekki nógu góð, við þurftum að vera með vegabréfið okkar á okkur, hver fer með vegabréf á dammið í USA? þvílík vitleysa. Ég held að leigubílstjórinn hafi vitað þetta því hann beið eftir okkur bannsettur, við ákváðum að fara bara aftur á miami beach og enduðum á einhverjum klúbb þar sem var endalaust af gömlum köllum (kringum fertugt) og allir með 3-4 gellur í kringum sig. Greinilega gott að vera ríkur á Miami beach.

Allavega gaman að segja frá því að ég fékk númerið hjá einni 28 ára gellu um daginn, góður elli, þær voru 2 þarna og báðar heví ríkar því þær héldu áfram allt kvöldið að splæsa á okkur bjór (mig og David og Oliver) um leið og maður kláraði einn bjór var konan á barnum komin með annan, við gátum ekki einu sinni afþakkað (þó maður segi nú aldrei nei við bjór) og já David er gaurinn sem við Atli vitum að sé hommi en hann veit það ekki ennþá, ekki illa meint fínasti gaur það er bara að hann er stereotýpa fyrir homma, hann var að slumma hina ríku gelluna og svo kemur hún og dregur mig og ríku gelluna sem ég var með í burtu og spyr mig hvort að hann sé ekki hommi og að henni hafi brugðið þegar hann byrjaði að kyssa hana æji þetta var svona you had to be there moment, mér fannst það allavega fyndið.

Veistu ég nenni ekki að skrifa meira í augnablikinu, mikið búið að gerast, ég ætla að reyna að henda inn einvherjum myndum þar sem fyrsta tilraunin mistókst eitthvað. Reyni að blogga fljótlega aftur, Svo má fólk alveg vera duglegt að kommenta eða skrifa í gestabók aníveis, later folks

Elli


» 11 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 23:56:31 / Elli

Goin' to Miami

hey ný færsla svona, veit ekki hvort ég bloggi aftur áður en ég fer út, já það er rétt er að fara til Miami eftir 10 daga, vúbbdí hú get ekki beðið. Aníveis lítið að frétta nema það að mig vantar einhvern til að leigja minn hluta í íbúðinni meðan ég er úti, hér eru smá upplýsingar um íbúðina:

86 fermetrar, 2 meðleigjendur (stelpur), frábær sturta, það er allt í þessari íbúð sem íbúð þarf að hafa, gott baðherbergi, fínt eldhús, er á klapparstíg 17 í miðbænum, fyrir neðan hverfisgötuna svo maður losnar við lætin í bænum um helgar, samt stutt að fara heim af djamminu (2 mín að labba á Hverfis), ekki dýr leiga. Ég ábyrgist mjög góðan svefn, sef alltaf eins og steinn.

Ef þú hefur áhuga að leigja þetta frá 1 apríl til 30 júní þá endilega hafðu samband 6942565

mig sárvantar leigjanda því ég þarf að geta komið aftur í þetta húsnæði þegar ég kem heim (finnst svo gott að búa þarna)

Allavega nóg í bili, læt heyra í mér frá MIAMI

Elli

p.s.

2 fílar lögð'af stað í leiðangur, léttur var ei þeirra fótgangur, takturinn fannst þeim heldur tómlegur, svo þeir tóku sér einn til viðbótar og svo on and on and on, gott lag svona


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 23:22:29 / Elli

Unicef barnahjálp

Hey núna var að klárast firmamót Norvíkur og viti menn, við lentum í 3ja sæti þ.e. við í timbursölunni í breiddinni, ekki sanngjörn úrslit en við verðum að sætta okkur við það, aðalástæðan að ég segi frá þessu er sú að við vorum með unicef framaná búningunum og hétum 5000 krónum fyrir hvert mark sem við myndum skora aníveis hér er linkur á fréttina sem segir allt þetta betur http://www.unicef.is/index_1155.htm 

gaman að því að við skoruðum 9 mörk semsagt 45 þús sem fer til unicef ágætt það... að sjálfsögðu lagði ég mitt af mörkum og skoraði ;) gaman að því

gott í bili bb


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 16:17:29 / Elli

My mom calls it Bloomies

Hey kominn tími á nýja færslu kannski, veit ekki, fólk er svo æst í að kommenta að mar bara hefur ekki við :S

Annars lítið að frétta, gengur ekkert svo vel að safna fyrir Miami ferðinni, dýrt að búa svona einn, en ég fæ launahækkun um mánaðarmótin (góður starfskraftur svona) svo það gæti auðveldað eitthvað. Svo árshátíð hjá Norvík í feb, svoldið sorglegt að við erum 6 sem erum skráðum okkur bara eina á hana, allir aðrir voru með 2 en það er bara fyndið, við ætlum að hella okkur vel fulla fyrir hátíðina og skemmta okkur eitthvað ;) stuð.

Hey verð að koma með draum sem mig dreymdi, bara fyndinn og grillaður: aníveis, ég er að djamma á einhverjum mafíósaklúbb og ég er að kyssa einhverja konu sem var með einum hátt settum í mafíunni og félagi minn dregur mig í burtu og segir að ég sé búinn að vera of mikið með konum sem eru með hættulegustu gaurunum svo við þurfum að drífa okkur, en þá tekur ein konan, sem er með the Don, í hendina á mér og hún situr við hliðina á Doninum og vill ekki sleppa mér og segir mér að bíða og þá sér einn gaurinn það og tekur í mig, en Doninn segir honum að sleppa mér bara ef ég hunskast í burtu svo þegar ég er að fara með félaga mínum stendur einn gaurinn upp og stingur einhverju í rassinn á mér og segir ,,þetta færðu fyrir að vera með konunni minni, þetta er með alnæmi". Mér bregður og ég sparka í punginn á honum og gríp nálina og þá koma allir glæponarnir á eftir mér og ég ota nálinni að þeim og hleyp af stað niður stigann með nálina í loftið öskrand: FARIÐ FRÁ ÉG ER MEÐ ALNÆMI hehe svo vakna ég. haha góður draumur mar

svo vil ég benda á geggjaða linka sem ég bætti við, mest smitandi hlátur í heimi og gaur sem fær raflost og markmaður sem þvælir sjálfan sig hehe og koma svo fólk einhver að kommenta.

Later

el-i


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 20:34:30 / Elli

YAAAAAAWN

Ímyndið ykkur 11 krakka sem er klárlega á einhverju gleðilyfu hrópa þessa setningu:

"Þetta er alltílagi, hann er ekkert skrímsli... hann er bara strákur eins og ég!!!"

HAHAHA þetta er klárlega setning vikunnar/mánaðarins í vinnunni, bara fyndið, ok einkahúmor, búinn að vera með svefngalsa síðan klukkan rúmlega 4 í nótt
geisp, farinn að sofa



» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 17:44:14 / Elli

Doktor

Howdy

Lítið að segja hérna meginn, geri lítið annað en að vinna og rúnar með bilaða tölvu víst, gaman, hey... djamm í kvöld og líklega á morgunn... er að fara í ullarverksmiðjueitthvaðdæmi fyrir Byko og þar er frítt áfengi vúhú loksins frítt áfengi fyrir minns.

Allavega ástæðan fyrir blogginu er þetta hérna:

http://www.youtube.com/watch?v=IH8TbX8zrYI

bara skemmtilegt atvik, fyrir utan þann sem varð fyrir barðinu á Cantona, já þetta er karateæfingin hans Cantona

Later folks

Bóbó


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 22:37:05 / Elli

Small í hakki

hey, varð að segja frá svolitlu fyndnu en samt ekki. Við vorum að fá sendingu og það vill svo til að allavega einn gámurinn var með sérpantanir á gleri haha. Neinei ekki bara gleri en við erum að tala um að hehe ca. 95% af dótinu í gámnum var brotið hehe, við erum að tala um mörghundruðþúsunda tjón hérna, jafnvel milljóna tjón. Við vorum semsagt 4 að hreinsa úr gámnum og klukkan 5 þá vorum við ekki hálfnaðir, þetta var geggjað, við fengum að brjóta helling, geggjað. Það ömurlega var að það var rigning og rok og skítkalt... og svo fann ég fimmhundruð kall
 

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 17:21:03 / Elli

Guacamole

Hey í hvaða mynd er þessi snilldarsetning?

"I'm ready for commitment Bla, first time i set eyes on Bla bla, i just got that old fashion romantic feeling... where i'd do anything to bone her "

come on people sýna svo hvað í ykkur býr... anyone
 

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 21:14:14 / Elli

Giggidy giggidy giggidy


 

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 05:36:04 / Elli

Whhat

nú er kominn tími á langa færslu og ég ætlaði að skrifa mikið en það er einhver gaur hérna að reyna að klæða mig úr fötunum... bíðiði aðeins ég ætla að reyna að komast að því hvað hann vill. ::S


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 22:32:39 / Elli

Sko

Ég var að pæla...

Andrés Önd gengur aldrei í buxum...

en samt þegar hann kemur úr sturtu þá er hann alltaf með handklæði utan um sig

Ég meina... hvað á það að þýða?

later


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 16:01:47 / Elli

In the north

hey er kominn norður ef þið hafið eitthvað að gera í kvöld hafið þá samúð, ætli minns reyni svo ekki að blogga eitthvað þegar ég kemst aftur inní tölvuna mína, allar hugmyndir eru vel þegnar

later
Bobo Svenström


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 19:47:23 / Elli

Hvað er málið??????

Hversu heimskt getur fólk orðið, það kom ein kona um daginn og ætlaði að fá nokkrar spýtur, hér er samtalið:

Elli: Góðan daginn
Kona: Góðan dag, ég ætlaði að fá hjá þér spýtur fyrir blómin mín
Elli: já, hversu breiðar og þykkar
Kona: æji ég veit ekki, bara svona ekkert of stórar ca bara svona (segir hún og sýnir þykktina milli þumalfingurs og vísifingurs, KOMMON), þetta er bara fyrir blómabeðið mitt
Elli: já ok, bara einhvern veginn svona (og sýndi henni 1x6 og 2x4)
Kona: já þetta gæti dugað
Elli: Hversu langar vantar þig
Kona: MILLI SVALAHURÐARINNAR OG HERBERGISGLUGGANS (já alveg rétt voru það ekki ca 2 metrar eða???)

nenni ekki að segja meira frá þessu samtali en það endaði með því að ég seldi henni 2 þriggja metra 1x6 og nokkra tommulista pfff

svo var annar gæi sem var að kaupa nokkrar 5,4 metra og 6 metra spýtur og var með kerru með sér sem var ekki meira en 1 og hálfur metri að lengd, hvað var hann að hugsa þegar hann lagði upp með þetta kríli aftan á bílnum, ég meina það.
Svo er náttúrulega best þegar eitthvað er ekki til þá segir fólk geðveikt pirrað "þá fer ég bara í húsasmiðjuna" svona til að móðga man.
Annars er þetta bara geggjuð vinna, fínir strákar að vinna þarna, geri lítið annað en að vinna og sofa hérna, geggjað stuð svona.

úúúúúú verð að enda þetta með góðu sem gerðist í dag, einn gaur var að keyra svona stóran lyftara sem fer í allar áttir (svona eins og ég er mikið að vinna á þið vitið) og hann er að fara að pikka upp eitthvað dæmi þá kemur einhver fertugur gæi brunandi inná svæðið (max speed er 10 km/klst) og beint fyrir lyftarann (á blindu hlið lyftaradriversins) sem er kominn með gaflana út og og lyftarinn fer beint inní hliðina á bílnum og svei mér þá gaflarnir stingast inn í bílinn, gera heavy gat á hann eitt undir húddið og annað sem gerir stóra sprungu í hliðina á bílnum og gaffallinn stingst lengst inní bílinn og rekst aðeins í gæjann sem stekkur til hliðar í farþegasætið. Nei gæinn segir við lögguna (sem var btw heeeeeví flott gella) að hann hafi verið á max 10 km/klst riiiiiight, myndbandsupptökur sýndu annað, svo kemur einn verkstjóri og ætlar að útskýra fyrir honum að þetta hafi verið honum að kenna því hefði hann keyrt hægar hefði hann séð lyftarann auðveldlega og náð að stöðva þá hrindir gæinn verkstjóranum og er með einhvern kjaft. þetta var sennilega skítugasti og ljótasti bíll sem ég hef séð og var skoðaður síðast í ágúst 2004 (var með 05 miða á númerinu). Gaman að þessu, vona að þetta hafi svalað einhverri forvitni
later folks



» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4